Einhverjir þarna úti súrir eða svekktir að missa af safaríkum páskaferðum þetta árið? Það er ýmislegt samt hægt ef fólk á seðlabúnt á bók og kemst út með litlum fyrirvara.

Laos langar mörgum að heimsækja enda mjög sérstakt af mörgum sérstökum löndum í Asíu. Mynd LightOnDude
Það kostar reyndar fyrirhöfn en það gæti verið vel þess virði að skoða Asíutilboð frönsku ferðaskrifstofunnar Nouvelles Frontieres. Sú ferðaskrifstofa sem um tíma starfaði hérlendis og látið vel af hefur snarlækkað verð á nokkrum innilega heillandi ferðum um Asíu og nemur afslátturinn allt að 80 þúsund krónum á mann.
Fást þar ferðir allt niður í 235 þúsund krónur miðað við að tveir ferðist saman og það er einfaldlega ekki hægt að kvarta eða kveina neitt yfir tveggja vikna ferð um alla Kambódíu með fullu fæði allan tímann fyrir 480 þúsund krónur á parið. Jafnvel þó greiða þurfi fyrir flug til Parísar og heim aftur er þetta ennþá skrambi fínn díll. Og brottför er eftir mánuð.
Meira hér en hafa skal í huga að vænlegra er að tala eða skilja frönsku til að fá sem mest út úr slíkum ferðum.







