Minnisvarðinn um þau 69 ungmenni sem myrt voru í fólskulegri árás Anders Breivik á Útey í Noregi árið 2011 verður vægast sagt magnaður.

Svona á fyrsti minnisvarðinn um þá sem létust á Útey 2011 að líta út. Alveg magnað verk.

Svona á fyrsti minnisvarðinn um þá sem létust á Útey 2011 að líta út. Skaginn Sörbroten verður hólfaður í tvennt. Alveg magnað verk.

Hugmyndin er að skagi sá sem gengur hvað næst Útey, Sörbroten,  og var miðpunktur  björgunarstarfsins þegar Breivik framdi fjöldamorð sín verði bókstaflega klipptur í tvennt með göngum. Þannig verði til djúpt sár á landinu sem aftur eigi að minna á það blóðuga opna sár sem morðin skildu eftir í þjóðarsál Norðmanna og ekki síst í hjörtum þeirra er áttu börn, vini eða ættingja er féllu þennan örlagaríka sumardag 2011.

Efnið sem til fellur vegna þessa fer ekki til spillis heldur því það á að nota í annan minnisvarða sem reisa á þar sem fyrsta sprengja Breiviks sprakk í miðborg Osló. Það verk á að heita Tími og hreyfing og verða nokkurs konar útileikhús en með áherslu á innri frið.

Tíminn og hreyfing. Minnisvarðinn sem reisa skal í miðborg Osló

Tíminn og hreyfing. Minnisvarðinn sem reisa skal í miðborg Osló