Ritstjórn Fararheill hefur fyrir sitt leyti ávallt borið takmarkalausa virðingu fyrir Víetnam og íbúum þess. Það þarf nefninlega grjótharða þjóð til að þola árásir og stríðsglæpi um margra ára skeið af hálfu mesta stórveldis heims en láta aldrei deigan síga.

Tvær vikur á þvælingi um eðalfína áfangastaði í Víetnam á aldeilis fínum prís. Mynd David McKelvey

Tvær vikur á þvælingi um eðalfína áfangastaði í Víetnam á aldeilis fínum prís. Mynd David McKelvey

Svo merkilegt sem það er koma erlendir gestir þó hvergi að neinu öðru en yndislegheitum hvar sem er í landinu og ekki síður brosað hér í garð ferðafólks en í landi brosanna í Tælandi.

Nú er breska ferðaskrifstofan Elegant Travel & Tours að bjóða sérdeilis magnaða ferð um þetta fallega land og það á frábæru verði.

Um er að ræða tveggja vikna ferðir og viðkomustaðirnir innanlands ekki af verri endanum. Ballið byrjar í Ho Chi Minh borg eða Saigon eins og hún hét eitt sinn. Dvalið á fínasta hóteli og borgin skoðuð í tvo daga. Þaðan er flogið til Danang í norðri á úrvals lúxusstað þar sem hægt er að taka dolce vita  pakkann í heila viku. Í kjölfarið er tveggja daga dvöl í hinni frægu borg Hue áður en endað er í Hanoi í þrjá daga. Slatti af skoðunarferðum í pakkanum og dvalið á hreint fínum hótelum allan tímann. Fyrir utan að matarverð er hér hreinn brandari.

Kostnaðurinn við slíka dúlluferð er næstum brandari líka eða 240 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Ferðin sú fyrir tvo í viðbót við flug til og frá Íslandi kostar því um það bil 560 þúsund krónur. Til samanburðar má geta þess að ferðaskrifstofan Vita er að bjóða ellefu nátta ferðir til Kína þessa stundina fyrir 460 þúsund á mann miðað við tvo saman. Engin samkeppni þar.

Margar dagsetningar eru í boði til Víetnam og tíminn nægur til að gera upp hug sinn. Nánar hér.