Það fer nú ekkert mikið fyrir því en ferðaskrifstofan Heimsferðir er að slá nokkuð af stöku ferðum til Funchal á Madeira í aprílmánuði. Það er eyja sem allir verða að heimsækja enda ein sú glæsilegasta á yfirborði jarðar.

Grasagarður Funchal er einn af hápunktum þeirrar borgar. Mynd David Stanley
Tímaramminn reyndar naumur því brottför í Madeira-ferð Heimsferða er sjöundi apríl eða rétt tæpur mánuður.
Verðið þó ekki það hátt að útiloka áhugasama því lægsta verð á mann miðað við tvo saman í níu nætur á sæmilegu hóteli er nú rúmlega 141 þúsund krónur. Innifalinn tólf þúsund króna bókunarafsláttur sem virðist þó aðeins gilda um ódýrasta hótelið í boði. Ekkert slíkt í boði ef dýrari hótel eru valin.
Hvetjum fólk óhikað til að láta slag standa ef þú hefur ekki sett niður fót hér áður.
Eitt þó skýtur í augu á bókunarvél Heimsferða og ágætt að hafa í huga áður en bókað er. Það er sú staðreynd að ferðaskrifstofan virðist vera að læða forfallatryggingu inn í verðið án þess að um slíkt sé beðið. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er hægt að tikka við það sérstaklega ef fólk óskar eftir en forfallagjald er þó þegar reiknað með fargjaldinu. Þetta mun vera klárt lögbrot eftir því sem Fararheill kemst næst en sem fyrr er enginn á vaktinni fyrir neytendur.








