Í sjónvarpsfréttum RÚV var spjallað við einstakling sem sagði flugfarir ekki sléttar eftir viðskipti við Icelandair. Sá setti mjög út á að Icelandair hafi ekki kynnt fólki réttindi sín í þeim tilfellum sem flugi er aflýst eða seinkað eins og hefur verið algengt síðustu dagana.
En þó lög og reglur kveði á um að flugfélögin beri undantekningarlaust að kynna öllum farþegum er verða fyrir alvarlegri seinkun eða aflýsingu flugs réttindi sín og hugsanlegar bætur líka hefur það aldrei tíðkast. Ekki hjá Icelandair, ekki hjá Wow Air og ekki hjá Iceland Express hér áður.
Þetta hafa menn getað lesið um á vef Fararheill gegnum tíðina því um þetta höfum við fjallað oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. En ekki taka okkar orð fyrir. Það er líka hægt að blaða gegnum þær kærur sem Flugmálastjórn hefur borist frá farþegum hin síðari ár og undantekningarlítið hefur fólki aldrei verið tjáð um réttindi sín samkvæmt þeim skýrslum.
Hvers vegna og hvernig komast þeir upp með það kannt þú að spyrja.
Ástæðan er sáraeinföld. Flugfélögin spara sér vinnu, tíma og mikla peninga að segja fólki ekki að það eigi til dæmis rétt á skaðabótum í viðbót við gistingu og mat ef flugi seinkar fram úr hófi. Algeng upphæð bóta eru 400 evrur á mann svo það er sannarlega hægt að spara verulegar upphæðir ef fólk áttar sig ekki á neinu. Og þegar enginn er að fylgjast með eru hæg heimatökin.








