Um árabil liggur við að áhugasamir hafi þurft að veðsetja húsið og börnin með til að fjármagna flug fram og aftur til Orlando í Flórída með Icelandair. Hundrað þúsund krónur plús hefur verið raunin á vinsælum tímum nú seinni árin á manninn og hinum almenna Íslendingi þótt nóg um.
Þess vegna er full ástæða til að setja bak við eyrað að frá og með júlí mun norska lággjaldaflugfélagið Norwegian hefja beint áætlunarflug sitt til nokkurra staða á Flórída frá Gatwick í Bretlandi. Gatwick er leiðindavöllur en hefur þann kost að þangað fljúga bæði Icelandair og Wow Air héðan.
Skoðun ritstjórnar á vef Norwegian leiðir í ljós að nánast alla mánuði þessa árs og fram á það næsta er hægt að finna fargjöld fram og aftur, án farangurs, niður í 68 þúsund krónur.
Sem er frábært verð frá Bretlandi en illu heilli verðum við að kaupa flug þangað og heim aftur og verðmiðinn því að minnsta kosti hundrað þúsund krónur.
Það er samt ástæða til að staldra við því leit á vef Icelandair að flugi fram og aftur í september, október og janúar leiðir í ljós að þar er ekkert undir hundrað þúsund krónum að finna. Við erum sem sagt jafnvel stödd með Icelandair og að kaupa flug til London og þaðan áfram með Norwegian.
Það auðvitað er fráleitt því beint flug er betra og hjá Icelandair er farangur með og Icelandair tekur þessa samkeppni í nefið. En hver veit nema það breytist þegar fram líða stundir því það eru jú kannski ekki margir farnir að bóka flug til Orlando í lok árs eða á því næsta. Um að gera að hafa augun hjá sér og gera verðsamanburð sé Flórídaferð á döfinni. Hver veit nema einn daginn verði munurinn mun meiri en nú er.








