Jólamarkaðsfræðingar heimsins eru ár eftir ár sammála að jólamarkaðir í hinni fallegu Prag séu oftar en ekki fremstir jafningja og það ekki lítil meðmæli enda rífandi samkeppni. Nú getum við orðið okkur út um stutta en sérdeilis fína og ódýra ferð á besta tíma.
Breska ferðaskrifstofan Travel Interaction er með tilboð þessa stundina á þriggja nátta ferðum til Prag frá Englandi. Ferðirnar í boði frá október og fram á næsta ár en vænlegur tími til að sækja Prag heim er auðvitað í desember.
Ferðin atarna í þrjár nætur á indælu fjögurra stjörnu hóteli miðsvæðis í borginni og morgunverður með kostar manninn alls 27 þúsund krónur miðað við tvo saman.
Hreint frábært verð en vantar ekki eitthvað í þetta spyrð þú.
Sannarlega, og þar liggur rúsínan grafin, því ferð þessa er hægt að hefja frá Bristol. Til Bristol er beint flug héðan með easyJet og leit á vef þeirra nú leiðir í ljós að flug út og heim aftur á ýmsum dagsetningum í nóvember og desember fæst allt niður í 21 þúsund krónur á mann án farangurs.
Með slíku fyrirkomulagi er því hægt að njóta daga á jólamörkuðum Prag tvö saman fyrir rétt rúmar 90 þúsund krónur plús farangur ef einhver er. Aukinheldur er hægt að taka dag eða tvo í Bristol og versla fyrir jólin en verðlag þar er almennt lægra en í London til dæmis.
Til samanburðar mætti nefna aðventuferðir Heimsferða til Heidelberg sem einnig eru þriggja nátta ferðir. Verð á mann í slíkri ferð sem reyndar er með fararstjóra kostar frá 119 þúsund krónur og túrinn allur fyrir par því 240 þúsund krónur. Bændaferðir eru einnig að bjóða fína aðventuferð sem er sjö daga ferð með fararstjóra. Sú kostar 187 þúsund á mann eða 374 þúsund fyrir parið.
Ferðin öll hér. Bóka verður eigi síðar en 1. júní.








