Það er algjör hending ef við Íslendingar finnum sex klukkustunda flug til og frá London undir 30 þúsund krónum en að finna níu stunda flug fram og aftur frá Kaupmannahöfn til Tel Aviv í Ísrael langt undir því verði er leikur einn.
Flestir hafa sterkar skoðanir á Ísrael og láta það ráða hvort það land fer á lista yfir ómissandi staði að heimsækja. Þrátt fyrir að þarlend stjórnvöld feti harðlínu gagnvart nágrönnum sínum og hafi gert lengi er það engu að síður staðreynd að sífellt fleiri Evrópubúar sækja Ísrael heim og þá eru stjórnmál alls ekki á dagskránni.
Það gleymist á stundum að Ísrael stendur við Miðjarðarhafið. Sama Miðjarðarhaf og Grikkland, Tyrkland, Ítalía og Spánn svo dæmi sé tekið. Og strandlífið til að mynda í Tel Aviv er hreint ekki síðra en á þeim stöðum öllum.
Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian hefur um tíma flogið beint til Tel Aviv frá Kaupmannahöfn en flug hvora leið fyrir sig tekur aðeins fjóra og hálfa klukkustund. Á vef þeirra norsku má finna flug báðar leiðir án farangurs allt niður í rúmar nítján þúsund krónur á tilteknum dagsetningum næstu mánuðina. Með þeim hætti er sannarlega hægt að dvelja á Miðjarðarhafsströndu án þess að hafa áhyggjur af feitum kostnaði og yfirdrætti.
Um að gera að skoða þennan möguleika líka fyrir þá sem ekki nenna í sérstakar ævintýraferðir en hafa fengið upp í kok af Spáni eða Ítalíu.








