Brasilísk stjórnvöld voru tiltölulega fljót að bregðast við viðvörunum vestrænna lækna sem fyrir tæpum mánuði vöruðu við að margir þeirra sem sækja Brasilíu heim yfir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu eigi á hættu að sýkjast af beinbrunasótt.
Sóttin sú er enn ein þeirra sem borist getur í menn frá moskítóflugum en beinbrunasótt, dengue fever, hefur lengi verið landlæg í Brasilíu og hvergi annars staðar dregur hún jafn marga til dauða í Suður Ameríku. Beinbrunasóttin veldur miklum hita og hausverkjum auk sárra verkja í beinum og liðamótum sem standa lengi yfir. Verstu tilfellin geta dregið fólk til dauða en engin er til lækning.
Stjórnvöld í Brasilíu búast við allt að 600 þúsund ferðamönnum til landsins meðan á keppninni stendur og fullyrt er að yfir þann tíma sem keppnin sé haldin sé tíðni beinbrunasóttar í rénun og sýkingarhættan því afar takmörkuð. Stofnun þar í landi hefur meira að segja komist að því að í allra versta falli muni aðeins 100 ferðamenn sýkjast af öllum þeim fjölda sem til Brasilíu kemur yfir HM.
En hvaða hundrað verða það…








