Tíðindi

Wow Air með nýstárlegt tilboð

  07/01/2013febrúar 4th, 2014No Comments

Wow Air býður upp á nýjung þetta árið en ritstjórn Fararheill veit ekki til að fyrirtækið hafi áður boðið 2-fyrir-1 tilboð. Slíkt er í boði nú til Kaupmannahafnar og fæst því farið aðra leiðina á 9.900 krónur á mann plús 900 króna bókunargjald og töskugjald ef slíkt á við.

Þetta er gott framtak á nýju ári sem vonandi verður ferðaþyrstum gott þó ýmislegt bendi til að ferðalög almennt í heiminum verði öllu dýrari nú en verið hefur.

Ekki mun vera hægt að bóka umrætt tilboð Wow á heimasíðu félagsins heldur þarf að hringja í fyrirtækið ellegar senda póst. Vert er að forvitnast sérstaklega hvort aukakostnaður sé því samfara því hefðin er að taka einhverja þúsundkalla sérstaklega fyrir bókun gegnum síma sem þá bætist ofan á verðið.

Bóka þarf fyrir miðnætti í kvöld sem hlýtur að þýða að starfsfólk taki við fyrirspurnum og pöntunum fram að þeim tíma. Ferðatímabilið nær fram í mars.

Heimasíða Wow Air hér.