Það skyldi þó aldrei vera að árið 2013 yrði árið sem fávitaleg boð og bönn verða lögð til hinstu hvílu. Flugmálastjórn í Bandaríkjunum hyggst fljótlega endurskoða reglur sínar varðandi notkun rafeindatækja í flugi og séu menn þar með vit í kolli gætu farþegar einn góðan veðurdag haft kveikt á öllum símum og tölvum án þess að fá samviskubit eða stofna vélinni í hættu.
Í fótbolta vita jafnvel mestu vitleysingar að sé staðan 10-0 í hálfleik er leikurinn svo gott sem búinn. Það hefur ekki verið raunin varðandi flugmálayfirvöld sem enn þann dag í dag krefjast þess, þvert á niðurstöður hundruð ítarlegra rannsókna, að slökkt sé á símum og rafeindatækjum við flugtak og lendingu og stundum í miðju flugi líka þar sem slíkt gæti haft áhrif á stjórnbúnað vélanna.
Fararheill fjallaði um daginn um afar fróðlega fréttaskýringu Economist á þessu bulli og nú greinir New York Times frá því að bandarísk flugmálayfirvöld hyggist loks endurskoða reglur sínar varðandi rafeindatæki farþega í flugi. Þó það nú væri því á síðasta ári tilkynnti sama stofnun að flugmenn mættu brúka far- og spjaldtölvur frá a til ö í flugi.
Hefðin er að ákveði Bandaríkjamenn eitthvað þá eru aðrir yfirleitt fljótir að breyta líka og kannski getum við öll skammlaust hringt í ömmu gömlu eða spilað Angry Birds fyrir flugtak og í lendingu. Það væri vonandi enda hefur aldrei verið sýnt fram á hættuna af rafeindatækjum um borð í flugvélum. Ekki af hálfu opinberra aðila, ekki af hálfu vísindamanna, ekki af hálfu flugmálastjórna og miklar rannsóknir bæði Boeing og Airbus hafa aldrei sýnt neitt athugavert.






