Heimur batnandi fer. Karl Vignir Þorsteinsson vonandi bak við lás og slá fljótlega og Air France snýst til sóknar gegn lággjaldaflugfélögum.

Hægt verður að fljúga með Air France á lággjaldaprísum frá febrúar næstkomandi en flest þau flug verða frá „hinum“ flugvellinum í París eins og margir kalla Paris Orly.
Franska flugfélagið hefur þann 6. febrúar næstkomandi sölu á svokölluðum Mini fargjöldum sem eru hræbilleg flugsæti allt niður í 8.400 krónur íslenskar til fjölda áfangastaða innan Frakklands og hugmyndin er að bæta við áfangastöðum í Evrópu og Norður Afríku fljótlega.
Það sem er öðruvísi við Mini fargjöldin er að þó verðið per se falli undir lággjaldaflugfélagsverð er engu að síður flogið með hefðbundnum vélum Air France þó í einhverjum tilfellum sé um minni innanlandsvélar að ræða í stöku ferðum. Mini farþegar munu njóta þess sama og aðrir farþegar flugfélagsins að öllu leyti nema að greiða þarf sérstaklega fyrir farangur.
Wow Air, Icelandair og Transavia munu fljúga milli Keflavíkur og Parísar í sumar og sé heppnin með gæti fólk dottið inn á tilboðsfargjald þangað og svo haldið ferð sinni áfram á ljúfum Mini verðum til Spánar, Túnis, Alsír, Egyptalands eða annað sem hugur leitar.
Meira um Mini fargjöldin hér.






