Þó ritstjórn Fararheill eigi það til að henda gaman að kjánalegum hlutum hjá ferðaskrifstofunni Heimsferðum, eins og bókunarvélin þeirra sem hönnuð var sérstaklega fyrir Sinclair Spectrum notendur, þá má sú ferðaskrifstofa eiga að engir aðrir eru jafn ötulir að bjóða ýmis tilboð jafnvel þó deila megi um nettan nánasarhátt þegar kemur að afsláttarkjörum.

Ekki amalegt að skíða í Lungau í Austurríki og láta fjallasól leika um kaldar kinnar í leiðinni. Heimsferðir býður nú tilboð þangað síðar í mánuðinum.
Nú býður ferðaskrifstofan þrenns konar tilboð sem þeir kalla janúarveislu. Mörg önnur heiti koma upp í huga ritstjórnar en látum það vera. Um er að ræða þrjár mismunandi ferðir; tvær til Kanaríeyja og eina skíðaferð til Austurríkis á afsláttarkjörum enda fyrirvarinn lítill.
Best er fjórtán nátta stökktu tilboð til Kanarí þann 15. janúar þar sem kaupendur fá ekki að vita nema rétt fyrir brottför hvar nákvæmlega þeir muni gista. Sú ferð fæst á 99.900 krónur á mann miðað við tvo til fjóra saman sem þýðir að hver dagur kostar einstakling rétt rúmar sjö þúsund krónur. Auðvitað er ekkert innifalið annað en þak yfir haus og vetrarsól en það er engu að síður dágott tilboð nú yfir allra leiðinlegasta vetrartímann hér heima.
Tilboð er líka til nágrannaeyjunnar Tenerife degi síðar eða 16.janúar en þar er sami „stökk“ díll í gangi og þú veist ekkert um hótelið fyrr en á síðustu metrunum. Þó er hér aðeins bætt í því hér er „allt innifalið“ eins og það er kallað þær fjórtán nætur sem ferðin stendur yfir. Verð á mann miðað við tvo saman er 139.900 krónur sem þýðir að dagurinn kostar einstaklinginn tæplega tíu þúsund krónur sem eru kostakjör ef fólk étur feitt og drekkur helling.
Þriðja ferðin er í boði til skíðasvæðisins Lungau í Austurríki þann 26. janúar í viku með hálfu fæði. Verð á mann miðað við tvo í þá ferð er 129.900 krónur. Það útleggst sem tæplega nítján þúsund krónur á mann á dag og þá á eftir að fæða sig að hluta og kaupa skíðapassa og þar fram eftir götunum. Minna spennandi en sólin á Kanaríeyjum að mati Fararheill.
Heimasíða Heimsferða hér.
PS: Öll tilboð Heimsferða eru auglýst miðað við fjóra einstaklinga; tveggja manna fjölskyldu með tvö börn. Eins og Fararheill hefur áður greint frá eru aðeins rúmlega þrettán þúsund íslenskar fjölskyldur í landinu sem falla undir skilgreininguna fjögurra manna fjölskylda. Hvers vegna að auglýsa verð sem miðast þannig við rúmlega 50 þúsund manns þegar þjóðin telur 320 þúsund? Afspyrnu léleg tilraun til að kasta ryki í augu viðskiptavina.







