Tíðindi

Lufthansa býður best til Berlínar

  07/01/2013desember 24th, 2013No Comments

Gleymið því að ferðast til Berlínar fyrri hluta sumars með Icelandair eða Wow Air og smellið ykkur rakleitt inn á vef þýska flugfélagsins Lufthansa sem best býður þá leiðina þessa dagana hið minnsta. Hægt er að finna flug með því fína flugfélagi í maí og júní á 15.150 krónur aðra leiðina en þó aðeins séu báðar leiðir bókaðar í einu.

Það er ekkert annað en hlægilegt verð hjá slíku eðalflugfélagi sem Lufthansa er.

Vekur þó mikla athygli að lægsta verð Lufthansa er meira en tvöfalt ódýrara en lægstu verð aðra leiðina út með Icelandair í maí eða júní.  Þar finnst ekkert ódýrara fargjald aðra leið en á 36.760 krónur.

Sér ritstjórn ekki betur en ekki verði komist mikið fram og til baka til Berlínar með Icelandair í sumar án þess að fara langleiðina í 80 þúsund krónur að lágmarki miðað við stöðuna á bókunarvél félagsins. Það er feitur seðill fyrir flesta Frónbúa og ekki laust við að það sé farið að minna á fargjöld Icelandair þegar flugfélagið einokaði íslenskan flugmarkað fyrir síðustu aldamót.

Wow Air býður töluvert betur en Icelandair en verr en Þjóðverjarnir miðað við stöðuna á bókunarvef félagsins. Í júní kostar ódýrasta far til Berlínar þegar þetta er ritað 18.900 krónur aðra leið en ofan á það bætist bókunargjald og töskugjald sé um slíkt að ræða.

Taska fylgir með hjá Lufthansa upp að 23 kílóum og allir skattar og gjöld innifalið í uppgefnu verði og er það miðað við flug á ódýrasta farrými svokölluðu Economy Saver sem kaupa verður með þó nokkrum fyrirvara.

Eitt er þó sem vekur sérstaka athygli og skiptar skoðanir eru um. Flug Lufthansa fer frá Keflavíkurflugvelli laust eftir miðnætti þetta sumarið. Það þýðir að lent er í Berlín snemma morguns og allur dagurinn blasir við.

Að hálfu ritstjórnar Fararheill er þetta hið besta mál því hægt er að sofa í vélinni og mæta ferskur til borgarinnar þegar hún er að vakna til lífs en þeirri skoðun deila ekki allir. Eigi fólk bágt með svefn í flugvélum er hætt við að fyrsta deginum í Berlín verði að mestu eytt með haus á kodda.

* Úttekt gerð kl 09 mánudaginn 7.janúar 2013. Hafa skal í huga að verðbreytingar hjá flugfélögunum eru örar og ekki gefið að allir finni þar sömu verð.

Heimasíða Lufthansa hér.

Fargjald Lufthansa er mikið mun betra en innlendra samkeppnisaðila til Berlínar í sumarbyrjun