Fararheill sagði í gær frá undarlegri nýrri ferðaskrifstofu, Spánarferðir, sem heillað hefði Íslendinga um nokkurra vikna skeið án þess að ljóst væri hvers kyns ferðaskrifstofu um væri að ræða þar sem upplýsingar væru litlar og mjög á reiki.

Nýstofnað fyrirtæki hérlendis segist leigja út sömu villu og auglýst er til sölu í erlendum fasteignamiðlum
Í kjölfar þess hefur aðeins bæst við af upplýsingum á vef Spánarferða og hefur nú breyst verulega lýsingin á því sem fyrirtækið er að selja. Í stað þess að auglýsa drauma sólarferð með golfi, einkavillu og sundlaug stendur nú aðeins að Spánarferðir leigi út villuna en býður ekkert sumarfrí per se.
Spánarferðir ehf. er nýtt fyrirtæki sem býður upp á Villu til leigu við Torreveija svæðið á Spáni. Sumarfrí með einkasundlaug, leiktækjum, grilli og frábærri afslöppun í sólinni stendur þér til boða.
Ennfremur kemur fram á vef fyrirtækisins að umrædd villa, sem vissulega er stór og falleg, sé í eigu Spánarferða. Sem kann að vera rétt en útskýrir þó ekki hvers vegna sama villa er auglýst til sölu á tæpar 93 milljónir íslenskra króna á erlendum sumarhúsasöluvef.
Fann glöggur lesandi Fararheill sömu villu í boði á vefnum PetraHönig.com og þar má sjá allar sömu myndir og Spánarferðir notast við á vef sínum.
Ekki skal alveg útiloka að um fleiri en eina nákvæmlega eins villu sé að ræða á sama stað en það er þó langsótt enda engin hefð fyrir slíku á Spáni.
Það er því vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig sé áhugi á viðskiptum við þetta fyrirtæki.






