Nýr dagur, sami skítur. Í það minnsta hjá Wow Air. Réttu ári eftir að við bárum saman einkunnir þeirra lággjaldaflugfélaga hjá flugvefnum Skytrax sem fljúga til og frá landinu, situr Wow Air enn kyrfilega á botninum fyrir lélegasta þjónustu.

Glaður er herra Mogensen. Aðeins minna bros á mörgum viðskiptavina hans. Skjáskot

Ekki svo að skilja að fólk á ritstjórn hafi átt von á að Wow Air kæmi fram við fólk eins og manneskjur í einu vetfangi en tólf mánuðir er dágóður tími til að taka til í kompunni og hreinsa út ruslið sem allt mengar.

Alas, ekki hjá herra Mogensen. Allt við það sama bara og allir góðir.

Einkunnavefur Skytrax má segja að sé Óskarsverðlaunapakki flugfélaga. Það er að segja ef allir sem þjónustu prófa hafa eitthvað til síns máls enda einkunnir þessa vefs alfarið byggðar á viðskiptavinum flugfélaganna sjálfra.

Og illu heilli fyrir Wow Air reynist það flugfélag enn og aftur sitja á botninum hvað varðar þjónustu og umhyggju fyrir viðskiptavinum. Listann í heild sinni má sjá hér neðar en það er lýsandi að þetta flotta sex ára gamla flugfélag hefur fallið úr fyrstu deild fyrir flottheit og þjónustu niður í botn á tiltölulega skömmum tíma.

Ekki þar fyrir að flug með Wow Air er ljúft eins og sumarvindur ef ekkert bjátar á. Gallinn sá að þegar eitthvað bjátar á, og það gerist mjög reglulega, má fólk prísa sig sælt með að fá tíma dagsins hjá flugfélaginu. Hvað þá bætur eða einfaldar upplýsingar.

Listi Skytrax þann 30. júní 2018:

  1. WOW AIR   3/10
  2. IBERIA EXPRESS 4/10
  3. VUELING 4/10
  4. ADRIA AIRLINES 5/10
  5. WIZZ AIR 5/10
  6. GERMANIA 5/10
  7. TRANSAVIA 5/10
  8. EASYJET 6/10
  9. NORWEGIAN 6/10
  10. EDELWEISS 7/10