Sól og himinsæla í Cancún í Mexíkó með haustinu? Þá þarftu almennt að punga út allt að því hundrað þúsund krónum að lágmarki fyrir flugið eitt og sér á haus. En ekki núna 🙂

Já, takk! Sól er næstum ábyrgð alla daga í Cancún í Mexíkó.
Ríkisflugfélagið AeroMexico er þessi dægrin að bjóða súperkjör á flugi fram og til baka frá New York til Cancún í haust og fram á vetur. Á vef flugfélagsins finnast fargjöld á sardínufarrými allt niður í 25 þúsund krónur fram og aftur.
Nú þegar við komumst yfirleitt til New York af klakanum fram og aftur allt niður í 45 þúsund krónur ef bókað er með sæmilegum fyrirvara má ljóst vera að við komumst nú alla leið í sæluna í Cancún og heim aftur með stoppi í New York fyrir svo lítið sem 65-70 þúsund krónur á kjaft. Það er brilljant verð á ferð alla þá leiðina og toppar auðveldlega túra í sólina á Kanaríeyjum á sama tímabili. Plús auðvitað að verðlag í Mexíkó er töluvert lægra almennt en á Kanarí 😉
Vefur AeroMexico hér.







