Sá sem bókar með flugfélaginu Wow Air í stað ferðaskrifstofunnar Heimsferða til og frá Alicante í sumar sparar sér í telfellum vel yfir 20 þúsund krónur á þeim leiðunum.

Töluvert lægra verð með Wow Air en Heimsferðum til Alicante. Mynd Wow Air
Ferðaskrifstofan Heimsferðir hefur í samstarfi við móðurfélag sitt Primera Air selt flugsæti til Alicante og frá síðan í vetur en þá auglýsti ferðaskrifstofan flugið út niður í 19.900 krónur frá mars og fram í október. Það ekkert gjafverð en hér er þó innifalin 23 kílóa taska með í för.
Vera kann að flugsæti á þessu verði séu einfaldlega uppseld en úttekt Fararheill leiðir í ljós að EKKERT EINASTA fargjald er í boði fram né aftur með Heimsferðum til Alicante frá 1. júní niður í 19.900 krónur. Þvert á móti er lægsta fargjaldið út 29.900 krónur og sama verð lægst til baka. Flug báðar leiðir kostar því manninn 58.800 krónur að lágmarki. Sem er hvorki meira né minna en 50% hærra verð per mann en auglýst er lægst.
Þar munar um minna og þá kemur Wow Air til skjala. Úttekt þar á bæ yfir þessa vinsælu sumarmánuði leiðir í ljós að komist er fram og aftur með flugfélaginu á allnokkrum dagsetningum niður í 35.997 krónur sem er 66% lægra verð en með Heimsferðum. Þar hins vegar enginn farangursheimild sem bætir tæpum fjögur þúsund krónum ofan á hvern fluglegg eða tæpar átta þúsund samtals. Það breytir ekki því að þó farangri sé bætt ofan á pakkann er Wow Air að bjóða mun betur eða rúmlega fimmtán þúsund króna lægra verð per haus.
Það munar vægast sagt um minna 🙂







