Ferðaskrifstofan Bændaferðir er besta ferðaskrifstofa landsins samkvæmt lesendum Fararheill. Gamanferðir taka silfrið en þessar tvær skjóta stóru ferðaskrifstofunum feitan ref fyrir rass.

Landsins besta ferðaskrifstofa árið 2016
Fararheill hefur um fimm mánaða skeið veitt lesendum tækifæri til að velja þá ferðaskrifstofu sem best þykir á vef okkar. Þar hefur vakið sérstaka athygli að tæplega 70 þúsund manns hafa skoðað niðurstöður þeirrar netkönnunar en það var ekki fyrr en í dag sem sex þúsundasta atkvæðið var greitt. Það var lágmarkið sem við settum okkur og hugmyndin að fá breiðan hóp fólks en jafnframt hafa lágmarkið nógu hátt til að einhverjir svindlarar gætu ekki kollvarpað niðurstöðunni.
Þó ekki sé um hávísindalega könnun að ræða þá er fjöldinn nægilega mikill til að mark ætti að vera á takandi og skoðun leiddi í ljós að enginn einn aðili, eða IP-tala, greiddi atkvæði oftar en sjö sinnum. Aldrei hægt að koma að fullu í veg fyrir slíkt nema gegn háum fjárhæðum.
Eins og sjá má á töflunni hér að neðan fékk Bændaferðir 20 prósent atkvæða alls og er sigurvegarinn. Nítján prósent sögðu Gamanferðir bestu ferðaskrifstofuna en aðrir aðilar töluvert þar á eftir. Sérstaklega koma þessar stóru illa út. Vita, Heimsferðir og Úrval Útsýn.
Þó ekki hafi verið farið fram á rökstuðning í könnun okkar þá er óhætt að geta í eyðurnar hvers vegna Bændaferðir (1200 atkvæði) njóta slíks stuðnings umfram aðra aðila. Þar hlýtur að skipa stóran sess að sú er ekki að bjóða sólarlandaferðir heldur nánast eingöngu sérferðir til staða sem forvitnilegir eru en ekki er heiglum hent að heimsækja. Við finnum engar neikvæðar umsagnir um Bændaferðir á fésbókarvef ferðaskrifstofunnar sem merkir að fólk telur sig vera að fá sitt og gott betur. Þá skemmir ekki að fararstjórar Bændaferða eru oftar en ekki sérfræðingar í þeim stöðum sem ferðast er um ólíkt því sem oft gerist hjá öðrum aðilum.
Gamanferðir (1140 atkvæði) eiga sterka innkomu og þykja langbestir af þeim aðilum sem bjóða þessar hversdagsferðir til sólarlanda auk þess sem fyrirtækið hefur tekið áberandi forskot í tónleika- og kappleikjaferðum sem ávallt njóta vinsælda. Kúdos á þá enda erfiður markaður.
Af þessum stóru er það Úrval Útsýn (720 atkvæði) sem hæst situr. Það var einmitt sú sem varð efst á blaði þegar við framkvæmdum fyrstu vefkönnun okkar árið 2011.
Annað sem hafa ber í huga er hversu margir (1020 atkvæði) telja aðra aðila bestu ferðaskrifstofuna. Eins og sjá má á ferðaskrifstofusvæði okkar hjá Fararheill eru þær fjölmargar á landinu þó lítið fari fyrir þeim mörgum. Greinilegt er að þær margar eru að gera ágæta hluti enda oft svo að öll þjónusta er betri og persónulegri hjá smærri aðilum en stærri.







