Skip to main content

Batnandi fólki er best að lifa og það sama gildir auðvitað um fyrirtæki sem er jú velflestum stjórnað af fólki (ennþá). Úttekt Fararheill á flugferðum héðan til Berlínar og heim aftur næsta sumarið leiðir í ljós að þar stendur Wow Air sig vel í samkeppninni.

Við gerðum sams konar úttekt í byrjun þessa árs og leituðum að allra lægsta fargjaldi frá Keflavík til Berlínar sumarmánuðina þrjá. Alla mánuðina reyndist þýska flugfélagið Airberlin bjóða lægra verð en Wow Air og munurinn nokkuð drjúgur miðað við tvö lággjaldaflugfélög.

Nú endurtókum við leikinn en nú leituðum við að ódýrasta fargjaldi báðar leiðir fyrir einn einstakling. Í ljós kemur að íslenska flugfélagið býður betur alla þrjá sumarmánuðina. Það er aldeilis framför hjá Wow og vonandi að framhald verði á.

Einn hængur er þó á samanburðinum að þessu sinni. Hann sá að Airberlin virðist ekki lengur bjóða sín allra, allra lægstu fargjöld, kölluð JustFly, og samanburður tekur því til FlyDeal fargjalda. Í þeim tilfellum er ein 23 kílóa taska innifalin í verði. Bætist ein slík við hjá Wow Air bætast tæpar átta þúsund krónur við fargjaldið og þá er Wow Air ekki lengur með lægsta verð.

* Úttekt gerð kl. 08.30 þann átjánda nóvember 2014. Leitað að lægsta fargjaldi báðar leiðir með gjöldum og sköttum. Taska innifalin hjá Airberlin. Hafa skal í huga að verð breytast hratt hjá flugfélögunum.

http://www.wedgies.com/question/546b384ac9e59c02000005bd