Allir sem lagt hafa land undir fót kannast við svefnleysi og doða þegar lagt er í hann út á Keflavíkurflugvöll eldsnemma morguns til að ná flugi klukkan sjö. Það getur verið erfitt og er að verða erfiðara.

Á leiðinni til Berlínar með Wow Air í sumar? Þá þarftu að rísa úr rekkju eigi síðar en þrjú um nóttina. Skjáskot
Auðvitað er ókristilegt að staulast á lappir klukkan fjögur á næturnar til að komast í flug snemma morguns. Sé miðað við það sem vísindamenn kalla eðlilegan svefn þýðir það að fullorðin manneskja þarf að fara að sofa uppúr klukkan 20 að kvöldi til að vera útsofin fjögur að nóttu.
Það gerir náttúrulega enginn og því er líkaminn allur úti á þekju í margar klukkustundir á eftir. Lítt heilsusamlegt með öðrum orðum,
Sem kunnugt er mun Wow Air brátt hefja flug til Bandaríkjanna en það kallar á nokkrar breytingar á leiðakerfi flugfélagsins. Ekkert stórvægilegt svo sem en þó er eitt athyglisvert. Ætli fólk til Berlínar eða Dublin er eiginlega lágmarkið að vakna í flug klukkan ÞRJÚ um nóttina. Brottför flugfélagsins til þessara áfangastaða frá Keflavík er nefninlega laust eftir klukkan sex.
Hingað til hefur það heyrst til undantekninga að flug fari í loftið frá Keflavík svo snemma morguns í reglulegt áætlunarflug þó reyndar allur gangur sé á því nú þegar fjöldi flugfélaga sem völlinn nota hefur aldrei verið meiri.
Flug klukkan sex er líklega ekki í uppáhaldi hjá neinum en það er einn plús sem á móti kemur og hann sá auðvitað að fólk er fyrr komið á áfangastað og oft vill adrenalínkikkið frá nýjum og framandi aðstæðum bæta mönnum upp svefnleysi fyrr um nóttina.
En það samt erfitt að vakna…







