Það er hópur fólks þarna úti sem undanfarin ár hefur nýtt sér frábært flugtilboð Primera Air til Billund og Köben enda flugið fengist niður í 9.900 krónur aðra leiðina reglulega. Þeir hinir sömu geta hætt að bíða eftir fleiri slíkum tilboðum því Ísland í heild sinni er út af sakramentinu hjá flugfélaginu.

Bókunarvél Primera Air. Þar finnst ekkert Ísland lengur. Skjáskot

Bókunarvél Primera Air. Þar finnst ekkert Ísland lengur. Skjáskot

Engin formleg tilkynning um slíkt hefur komið fram okkur vitandi en forráðamenn þess hafa nú flutt fyrirtækið frá Íslandi til Ríga í Lettlandi og ástæðan erfðar aðstæður til rekstrar í Skandinavíu. Þetta er í annað skiptið sem forráðamenn flýja land en það gerði Primera líka árið 2009 en þá var vandamálið nýsett gjaldeyrishöft og almennt vantraust.

En það er ekki aðeins fyrirtækið sem nú er að fullu farið út heldur og búið að loka fyrir allar flugferðir líka. Á vef Primera Air er ekki lengur í boði að velja Ísland sem brottfararstað né ákvörðunarstað. Engar ódýrar Billund ferðir fást þar framar.

Sem er athyglisvert í ljósi þess að algjör sprengja hefur orðið á flugferðum til landsins og aldrei fleiri flugfélög haft flug hingað á stefnuskránni. Getur verið að samkeppnin hafi borið Primera menn ofurliði? Kannski það en það er miður að flugfélögum hingað fækki og það líka flugfélagi sem á rætur að rekja til landsins.