Undarleg tilviljun! Röskum sólarhring eftir að Fararheill skýrði frá því að alls ekkert væri lengur í boði til Íslands eða frá í beinu flugi með Primera Air stekkur þetta nýstofnaða lettneska flugfélag fram með allnokkra nýja áfangastaði.

Skjótt skipast veður. Primera Air býður nýja áfangastaði í beinu flugi
Ekkert við það að athuga í sjálfu sér en óþarfi að ýja að því að öllu flugi til og frá landinu yrði hætt. Sem er eðlileg niðurstaða þegar Ísland finnst hvergi á bókunarvél flugfélagsins.
Reyndar synd að flugfélagið sé farið með allt úr landi héðan með tilheyrandi uppsögnum starfsfólks en kannski er allt einfaldara frá Ríga í Lettlandi.
Það breytir ekki því að Primera ætlar að bjóða nýja áfangastaði til Íslands og frá sem er hið besta mál. Meiri samkeppni þýðir lægri verð og stundum betri þjónustu líka. Áfangastaðir Primera á næsta ári verða Malaga, Mallorca, Tenerife, Las Palmas og Barcelona á Spáni, Chania á Grikklandi, Bologna á Ítalíu, Salzburg í Austurríki og til Milas í Tyrklandi.







