Vaknið full af hamingju! Það er ekkert verið að spara stóru orðin hjá hótelbókunarvélinni Hotels.com sem hefur það mottó að notendur séu hamingjusamir á öllum hótelum heims. En það er hér eins og oft áður þegar stór orð eru látin falla að það reynist vera innantómt gaspur þegar allt kemur til alls.
Það er auðvelt að láta blekkjast. Hótelleitarvélin Hotels.com er bæði vel þekkt og komin til ára sinna og að baki henni er einn allra stærsti aðili heims í ferðum og ferðamennsku, hið bandaríska Expedia. Vefur þeirra er flottur, á íslensku og úrvalið ekki lakara en gengur og gerist.
En sé drepið niður auga á hinum virta vefmiðli Trustpilot sem mælir traust fólks til hinna og þessara fyrirtækja heims kemur í ljós að Hotels.com þykir einn allra lakasti hótelvefur heims. Hotels.com fær háðulega útreið hjá viðskiptavinum og meðaleinkunn 4.2 af 10 mögulegum.
Sé skimað yfir nokkrar umsagnir kemur fljótt í ljós að bæði er fólk afar óánægt með þjónustuna. Hún er sögð hræðileg. Ekki bætir heldur úr skák að allnokkrir kvarta yfir að hafa komið að lokuðum dyrum á hótelum sem bókuð hafa verið gegnum Hotels.com.
En ef við kíkjum aðeins á einkunnir þeirra hótelleitarvéla sem þekktastar eru að Hotels.com frátaldri kemur í ljós að Agoda þykir afar góð. Sem hún er að mati Fararheill sem hefur reynslu af. Agoda er oft með afar fínt verð á mjög fínum hótelum en þá fyrst og fremst í Asíu. Annars staðar er niðurstaðan lakari. Agoda nær 9.2 í einkunn.
Hótelbókunarvél Fararheill, Hótelscombined, fær einkunnina 8.8 hjá notendum og er næst á eftir kemur Booking með meðaleinkunnagjöfina 8.7. Trivago þar rétt á eftir með 8.6.
Við vonum að þú sért ekki lengur að efast að bókunarvél okkar sé fyrsta flokks. Og ekki bara það heldur langstærsta úrval hótela og gistihúsa af öllum þeim leitarvélum sem hér eru nefndar. Plús auðvitað lægsta verðið. Gáðu bara 🙂








