Flug aðra leið til London fyrir heilar 3.599 krónur! Það næstum helmingi lægra verð en Wow Air býður best sömu leið og aðeins 270 prósent lægra verð en Icelandair býður best.

Ók, stöku brilljant fargjöld breyta því ekki að Primera Air fær seint eða aldrei verðlaun fyrir góða þjónustu. En það er samt staðreynd að það flugfélag er þessa stundina að bjóða allra lægsta fargjald aðra leið til London frá Keflavík sem við höfum séð í áraraðir.

Þrjú þúsund fimm hundruð níutíu og níu krónur kostar ódýrasta fargjald Primera Air frá Keflavík til London í októbermánuði en þar auðvitað ekkert meðferðis nema peningar, passi og snyrtibudda eða svo.

Ekki svo að skilja að þetta sé normalt verð Primera Air á flugi til London. Þetta er undantekning en merkileg undantekning samt því við höfum aldrei séð svo lágt fargjald þessa leiðina ef frá eru talin einstöku tilboð breska flugfélagsins easyJet. Ekkert íslenskt flugfélag hefur boðið svo lágt verð nokkru sinni og reyndar fjarri því. Það besta sem Wow Air býður í október aðra leiðina er flug án alls niður í tæplega sex þúsund krónur og Icelandair er varla samkeppnishæft í 13.305 krónum. Þó reyndar verði að taka fram að hjá Icelandair er leyfilegt að grípa með handfarangursdruslu upp að tíu kílóum.

Sakar ekki að kíkja á tilboð Primera Air héðan. Óhætt að hafa í huga að þú er fokked ef eitthvað bjátar á en ef ekkert er vesenið eru 3599 krónur til London bara brill út í eitt 😉