Íslenskir fjölmiðlar fá ekki tíma dagsins hjá Skúla Mogensen, eiganda Wow Air, en hann tekur umsvifalaust upp símann þegar erlendir miðlar á borð við Financial Times og flugvefinn Skift hringja og vilja komment.

Verða þessi tvö flugfélög eitt og hið sama í framtíðinni? Samsett mynd
Skift er fyrir þá sem ekki þekkja einn af vinsælli vefum heims sem sérhæfa sig í fregnum af flugfélögum. Þar mætti herra Mogensen umsvifalaust í spjall þó hann hafi gefið íslenskum fjölmiðlum þau skilaboð að hann myndi ekki svo mikið sem hnerra í þeirra átt fyrr en síðar í vikunni.
Sem segir ýmislegt um hinn danskættaða Mogensen ekki satt?
Látum það liggja milli hluta. Það sem er forvitnilegast við spjall Mogensen við Skift er svar hans við því hvort fýsilegt sé að Wow Air og Icelandair renni saman í eitt:
“It’s an obvious question,” Mogensen said. “Clearly we could rationalize the network and leverage the situation a lot better — a no-brainer. Will it ever happen? I am not sure.”
„A no-brainer,” segir Mogensen við hinn erlenda miðil. No-brainer þýðir einfaldlega að það liggi ljóst fyrir að það sé sniðugt.
Með öðrum orðum; Mogensen er greinilega að opna dyrnar fyrir samkrulli við Icelandair jafnvel þó sami Mogensen hafi nú ekki vandað Icelandair kveðjurnar síðustu árin.
Og sá danskættaði gerir meira en ýja að hlutum. Hann segist ekki viss um að það muni ganga eftir…
Segir það sig ekki sjálft að ef Mogensen „er ekki viss um að það gangi eftir,” þá hefur hann klárlega haft samband við forráðamenn Icelandair í þeim hremmingum sem Wow Air hefur lent í að undanförnu.
Væri svo vitlaust fyrir fjölmiðlamenn með aðgang að kappanum eða forráðamönnum Icelandair að skoða þetta nánar?







