„Hvernig væri að stilla upp einni ferð fyrir veturinn til að brjóta upp vetrarrútínuna? Kíkja á notaleg kaffihús, taka skipulagið upp á næsta stig og versla allar jólagjafirnar eða kíkja í heimsókn til vina eða ættingja? Gríptu tækifærið og fljúgðu betur til Skandinavíu.”

Kíkja á notaleg kaffihús, taka skipulagið upp á næsta stig og versla allar jólagjafirnar eða kíkja í heimsókn til vina og ættingja?

Hmmm. Ljóst að fésbókarsérfræðingur Icelandair hefur aldrei ferðast lengra en í Skagafjörðinn. Eða hvernig „brýtur” fólk upp vetrarrútínuna með því að fljúga til borga sem eru að minnsta kosti jafn kaldar og Reykjavík og í tilfelli Helsinki, töluvert kaldari?

Og hvað merkir að „taka skipulagið upp á næsta stig” eiginlega? Og hvers vegna er það auðveldara í Osló, Stokkhólmi eða Helsinki í desember og janúar en í Reykjavík?

Og hver er að fara að kaupa jólagjafir í Osló, Stokkhólmi eða Helsinki. Bara þrjár dýrustu borgir heims á eftir Reykjavík???

Svo margar spurningar en engin svör. En gott að Icelandair er að ráða hæfileikafólk til að hanna fésbókarauglýsingar sínar. Næsta skref að hækka lágmarksaldur umsækjenda úr fjórtán árum…