Íslendingum hefur þetta sumarið boðist óvenjulega hagstæð flugfargjöld og orsökin að sjálfsögðu tilkoma Wow Air auk tíðari ferða erlendra flugfélaga hingað til lands. Ritstjórn Fararheill hefur þó ekki fyrr rekist á flugfargjald aðra leiðina til Alicante á aðeins 9.900 krónur sem er ekkert minna en frábært tilboð og rúmlega tíu þúsund krónum ódýrara en besta boð Iceland Express nú um stundir svo dæmi sé tekið.
Það er í boði í einni einustu ferð Heimsferða þetta haustið og nánar tiltekið allra síðustu ferð þeirrar ferðaskrifstofu þangað í bili þann 31. október næstkomandi.
Er reyndar ferðaskrifstofan að bjóða tilboð á öllu flugi sínu þangað þennan mánuðinn og er reyndar 14.900 krónu fargjald algengt aðra leiðina með sköttum og einni tösku. Það er einnig mjög gott boð til Alicante.
Auðvitað þarf að koma sér heim á nýjan leik fyrir flesta og þó flugi Heimsferða ljúki þann 31. október er ekki þar með sagt að fólk sé strandaglópar á Spáni. Hægt er að komast til baka, en á hærra gjaldi, með Iceland Express eða með fjölmörgum erlendum flugfélögum og millilenda þá í London, París, Osló eða Kaupmannahöfn.
Heimasíða Heimsferða hér.






