Úttekt Fararheill.is leiðir í ljós að ferðaskrifstofan Úrval Útsýn makar verulega krókinn aukalega fyrir flugferðir til Alicante í sumar. Kostar flugfar fram og tilbaka í júlí með Úrval Útsýn fyrir einn 76.930 krónur meðan nákvæmlega sama flug með nákvæmlega sama flugfélagi kostar 64.900 hjá Heimsferðum.
Svo undarlega vill til að flugfélag það sem báðar ferðaskrifstofur nota til leiguflugs síns er Iceland Express/Aestreus en fargjaldið á þeim bænum fyrir sama flug og hjá ferðaskrifstofunum er hærra en hjá Heimsferðum. Iceland Express býður ferðina á 71.172 krónur.
En sé aðeins litið til ferðaskrifstofanna tveggja munar aldeilis um tólf þúsund krónur og er þá aðeins litið til fargjalds fyrir einstakling. Fari fjögurra manna fjölskylda saman er munurinn kominn í 48 þúsund og munar um minna.
* Verðkönnun 4. apríl kl 23:30






