Tíðindi

Í sjöunda himni með Air Comet

  01/04/2010maí 17th, 2014No Comments

Ákveðnar líkur eru á að spænska flugfélagið Air Comet trekki sérstaklega að karlkyns farþega á næstunni. Flugþjónar flugfélagsins, sem allir eru kvenkyns, hafa nefninlega ákveðið að fækka fötum við störf sín en það er ekki til að gleðja karlpeninginn heldur til að þrýsta á um að fá laun sín greidd. Hafa flugfreyjurnar ekki fengið greitt í níu mánuði.

Einhvers staðar þætti það þolinmæði á heimsmælikvarða en það er nokkuð til marks um þá hræðilegu stöðu sem Spánverjar eru í að þær eru enn að störfum þrátt fyrir níu launalausa mánuði. Er enda atvinnuleysi á Spáni vel yfir 20 prósentum og fáir hlaupa auðveldlega í ný störf.

Hafa flugfreyjurnar ekki aðeins ákveðið að mótmæla reglulega án fata heldur hafa þær einnig gefið út dagatal þar sem sjá má tólf þeirra bera sig fyrir málstaðinn.

Fullyrða má að þeir séu fáir karlmennirnir sem ekki væru í sjöunda himni með hálfnaktar eða alnaktar flugfreyjur við þjónustustörf. Hver sem segir annað er lygari.