Tíðindi

Uppselt á marga viðburði Ólympíuleikanna

  26/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Allmargir Íslendingar ætla sér að fylgjast með ákveðnum viðburðum á Ólympíuleikunum í London næsta sumarið. Flestir þeir miðar sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fékk til ráðstöfunar í einstökum íþróttagreinum og Icelandair selur eru uppseldir.

Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, blaðafulltrúa Icelandair, hafa allt að 1200 miðar selst nú þegar á ýmsa einstaka viðburði. Þannig er uppselt á keppi í badminton, dýfingum, frjálsum íþróttum, júdó, sund og skotfimi svo dæmi séu tekin.

Gera verður ráð fyrir að mestur áhugi landans verði á handknattleik fari svo að íslenska landsliðið komist alla leið en það mun taka þátt í forkeppni fyrir leikana í London og verður ekki ljóst hvort silfurdrengirnir okkar verða með fyrr en líða fer á vorið.

Fari svo að landsliðið komist alla leið mun ákveðinn fjöldi miða verða í boði og vart að efa að þeir miðar munu rjúka út enda aldrei jafn einfalt og stutt að leggja leið sína á Ólympíuleika en á næsta ári fyrir Íslendinga.

Fararheill hefur þegar skýrt frá því að ferðamálayfirvöld í London hafa áhyggjur af því hversu fáar bókanir almennt hafa borist næsta sumarið en þær eru umtalsvert færri en í meðalári. Hvort úr rætist þegar nær dregur verður að koma í ljós.