Þrjár vikur á Kúbu yfir myrkasta tíma ársins fyrir 48 þúsund krónur. Fáir eru líklegir til að slá hendinni móti svo góðu tilboði þó reyndar sá hængur sé á að flugfar til og frá er ekki innifalið og ferðafólkið verður að taka til hendinni í vinnu tvær vikur af þessum þremur.
Um er að ræða ferð Vináttufélags Íslands og Kúbu, Vík, sem farin verður þann 18. desember næstkomandi og er dvalist á Kúbu yfir jól og áramót og ekki komið til baka fyrr en 7. janúar.
Er þetta vinnuferð að hálfu þar sem gestir hjálpa til við ýmis verkefni í héraðinu Pinar del Ríó og bænum Caimito til vesturs frá höfuðborginni Havana. Síðustu vikuna fá þátttakendur túr um eynna og það á besta mögulega máta; með heimafólki.
Er reyndar umsóknarfrestur í umrædda ferð liðinn en hafi fólk áhuga að prófa nýja hluti og það á ódýran hátt er slík ferð tiltölulega dæmigerð fyrir þær ferðir sem í boði eru hjá hinum ýmsu vinafélögum hér á landi. Því þótt taka þurfi til hendi brýtur sú vinna ekki bak á neinum og samhliða kynnist fólk ekki aðeins heimafólkinu sjálfu heldur og öðru fólki frá Norðurlöndum og víðar sem áhuga hefur á landi og þjóð.
Þó ekki finnist ódýrar flugferðir til Kúbu með svo litlum fyrirvara er alla jafna með bærilegum fyrirvara hægt að komast til og frá Kúbu frá Bretlandi fyrir 130 til 150 þúsund krónur og fyrir litlu meira frá Kanada.
Því kostar slík ferð innan við 200 þúsund krónur því gisting, matur og ferðir innanlands eru innifaldar. Vissulega ekki á fyrsta flokks hótelum heldur í herbergjum með öðrum og ekki er heldur hlaðborð í boði en engu að síður er þetta efalítið heillandi fyrir þá sem hafa ævintýri í blóðinu og vilja prófa nýja hluti á ferðalögum.






