Tíðindi

Franco fluttur úr Dal hinna föllnu

  28/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Lík hershöfðingjans og einræðisherrans Francisco Franco verður að líkindum grafið upp og flutt úr Dal hinna dauðu, Valle de los Caídos, í hefðbundinn kirkjugarð í höfuðborginni Madríd ef tillögur sérstakrar nefndar ná fram að ganga.

Er Dalur hinna dauðu einn af vinsælli áfangastöðum bæði spænskra og erlendra ferðamanna en dalur þessi er í rösklega 50 mínútna fjarlægð frá höfuðborginni. Er þar að finna glæsilega neðanjarðar basilíku, munkaklaustur auk minnisvarða um um alla þá er létu lífið í Spænsku borgarastyrjöldinni.

Er staðurinn magnaður heimsóknar en 152 metra hár kross yfir basilíkunni sést víða að áður en komið er á staðinn. Skammt frá er El Escorial höllin sem er einhver sú glæsilegasta sem til er í heiminum og var lengi vel kölluð áttunda undur veraldar.

Hér eru grafin lík 34 þúsund einstaklinga, bæði úr röðum Lýðveldissinna og Falangista, sem létu lífið í borgarastyrjöldinni en þeirra frægastur, og jafnframt umdeildastur, er sjálfur Franco hershöfðingi sem réði ríkjum á Spáni um áratugaskeið. Vilja margir Spánverjar meina að það sé hrein óvirðing því ódæðisverk Francos eru velþekkt og enn þann dag í dag að koma í ljós.

Því er sérstök sáttanefnd sem lauk störfum í síðasta mánuði sammála og mælir með við spænsk stjórnvöld að lík Franco verði flutt úr Dal hinna dauðu. Hann eigi einfaldlega ekki skilið þann heiður og aldrei verði sátt um grafreitinn meðan hann liggi þar meðal hinna þúsunda óbreyttu hermanna sem létu lífið á árunum 1936 til 1939.

Stjórnvöld hafa ekki tekið neina ákvörðun um framhaldið.