Allir þeir sem fljúga til London í næstu viku skulu búa sig undir töluverðar tafir á helstu flugvöllum borgarinnar. Hafa tollverðir og starfsmenn útlendingaeftirlitsins tilkynnt um verkfall á miðvikudaginn í næstu viku og það mun hafa veruleg áhrif á flugumferð.

Verkföll Útlendingaeftirlitsins breska munu hafa miklar tafir í för með sér á breskum flugvöllum í næstu viku
Sendi yfirstjórn Heathrow flugvallar, sem Icelandair notar, frá sér tilkynningu í morgun þar sem varað er við allt að tólf klukkustunda töfum á þeim flugvelli í næstu viku þegar verkfallið skellur á.
Segir í þeirri tilkynningu að líklega verði flugfélög að halda farþegum sínum í vélunum því ekki sé pláss fyrir alla komufarþega inni í flugstöðinni.
Sömuleiðis er ljóst að tafir verða á Stanstead og Gatwick flugvöllum þó þær ekki jafn alvarlegar enda flugumferð þar töluvert minni. Iceland Express notar Gatwick.
Þeir sem pantað hafa ferðir sínar sjálfir eiga ekki rétt á neinum bótum vegna þess þar sem verkföll eru ekki á ábyrgð flugfélaga. Hins vegar eiga þeir sem eru í pakkaferðum rétt á hótelgistingu og ferðum.






