Með ákvörðun easyJet að fljúga milli Keflavíkur og London á næsta ári aukast töluvert möguleikar landans til utanlandsferða á verði sem allir ættu að ráða við. Sérstaklega þar sem líklegra er en ekki að bæði Icelandair, Iceland Express og jafnvel Wow Air, fljúgi þeir síðastnefndu til London, dembi sér í verðsamkeppnina um leið og easyJet tekur til starfa hérlendis.
Þetta er jákvætt því frá London er hægt að fljúga áfram nánast hvert sem er í heiminn og þannig þarf fólk ekki lengur að hafa mjög mikið fyrir því að skipuleggja eigin ferðalög.
En það er einn veigamikill munur á þessum þremur flugfélögum. Ekkert þeirra brúkar sama flugvöllinn í London. Icelandair notar Heathrow, Iceland Express flýgur til Gatwick og ferðist fólk með easyJet er lent í Luton.
Ritstjórn Fararheill.is hefur tekið saman helstu upplýsingar sem nýtast þeim er hyggja á ferð til London en það getur skipt máli að velja réttan flugvöll alveg eins og það skipti máli að velja rétta flugfélagið.
HEATHROW – er kominn vel til ára sinna og er bæði stór, ljótur og að margra mati barn síns tíma. Fljótlegast er komist til London til Paddington stöðvar með Heathrow Express á 15 til 20 mínútum. Sú lest er þó fokdýr. Ódýrasta staka fargjaldið á 3.200 krónur og fæst aðeins gegn kaupum á netinu. Á stöðinni kostar farið hins vegar 3.400 krónur og enn dýrara sé miði keyptur um borð. Einnig er í boði að fara með Heathrow Connect. Sú ferð er lengri, um hálftími, en ódýrari og fæst stakur miði á netinu fyrir 1.700 krónur til Paddington stöðvar. Heimasíða Heathrow.
LUTON – er nýlegur flugvöllur en tiltölulega lítill og með takmarkað úrval verslana og veitingastaða. Með leigubíl tekur fimm mínútur eða svo að fara inn í miðbæ Luton en þangað er lítið að sækja nema ef vera skyldi eitthvað matarkyns eða drepa nokkra kalda meðan beðið er flugs. Gallinn hér er sá að til að komast með lest til London þarf að fara tíu mínútna leið að svokölluðum Luton Airport Parkway og þaðan tekur 25 mínútur að fara að King´s Cross stöðinni í London. Tvö lestarfélög fara á milli; First Capital Connect, stakt fargjald 1.500 krónur, og East Midlands Trains, 1.900 krónur ódýrasta fargjald, en þó lestir þess síðarnefnda séu fjórum mínútum fljótari eru tíðari ferðir með þeim fyrrnefndu. Rúnturinn tekur um 50 mínútur í heild. Heimasíða Luton.
GATWICK – Þrjár mismunandi lestir fara milli Gatwick og London. Gatwick Express er fljótust þeirra, 30 mínútur, og fer að Victoríu stöð sem er þokkalega miðsvæðis ef fólk vill drepa nokkrar klukkustundir. Fargjald á netinu kostar 3.000 krónur en 3.300 ef keypt á flugvellinum. Lestir Southern Trains er annar möguleiki og í raun jafnfljótar í ferðum kringum 30 til 40 mínútur og ódýrari. Stakur miði á 2.400 krónur ef keypt á netinu en 2.700 annars. Þriðji möguleikinn eru lestir First Capital Connect að London Bridge. Þær eru hins vegar klukkustund á leiðinni og prísinn sá sami og hjá Southern. Heimasíða Gatwick.
Á öllum flugstöðvunum eru líka í boði rútur inn í London. Reynsla ritstjórnar Fararheill er þó slæm af þeim sökum mikillar umferðar á vegum kringum borgina. Sé verið að fara á milli flugvalla skal gefa sér fjórar klukkustundir hið minnsta til að vera öruggur og sömuleiðis gefa sér nægan tíma frá London að flugvelli. Sé tíminn nægur eru rúturnar þó nokkuð ódýrari en eðli málsins samkvæmt tekur ferðin til og frá mun lengri tíma.
Hér að neðan má sjá hvert lestirnar frá flugvöllunum fara inn í London. Hafa skal í huga að lestir First Capital Connect fara þó til fleiri staða innan borgarinnar.
View Frá flugvelli inn í London – möguleikarnir in a larger map






