Tíðindi

Uppselt á Júróvisjón í Dusseldorf

  24/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Þó enn séu tveir og hálfur mánuður þar til Júróvisjón keppnin fer fram í Dusseldorf í Þýskalandi er þegar gjörsamlega uppselt á viðburðinn sjálfan. Þó má enn verða sér úti um miða á forkeppnina en þá skal hafa hraðann á.

Miðaverð á forkeppnina sem fer fram 10 og 12 maí næstkomandi er frá 4.700 krónum fyrir allra öftustu, og jafnframt lélegustu, sætin og upp í 19.000 krónur fyrir sæti í grennd við sviðið. Sjálf aðalkeppnin fer svo fram 14. maí en á þann viðburð er löngu uppselt.

Hér má kaupa miða á fyrri forkeppnina.

Hér má kaupa má á seinni forkeppnina.