Tíðindi

Íslendingar vilja á nýjar slóðir

  25/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Meirihluti íslenskra ferðalanga kjósa að ferðast á nýjan og óþekktan stað á þessu ári ef marka má síðustu könnun Fararheill en 44 prósent þátttakenda svöruðu á þá leið. Mættu samkvæmt þeirri niðurstöðu  íslenskar ferðaskrifstofur vakna aðeins til lífsins og bjóða fleira en þær gera í dag.

23 prósent þátttakenda ætla sér þangað sem bjórinn er ódýr þetta árið og kemur vart heldur á óvart enda bjórinn orðinn fokdýr hérlendis. Þá ætla 17 prósent til Benídorm í sumar og 16 prósent vilja í gönguferðir erlendis eða spila golf.

Ritstjórn þakkar kærlega fyrir góða þáttöku en 274 einstaklingar tóku þátt að þessu sinni. Ný könnun er komin á vef Fararheill. Þar er spurt hvort verðlagning íslenskra ferðaskrifstofa sé eðlileg.