Þó kenna megi Bretum um fjandi margt sem miður fer í heiminum hafa þeir á stundum bullandi vit í kolli. Okkur vitandi finnst til dæmis hvergi annars staðar í heiminum sérstakur umboðsmaður ferðamanna.

Leiðindi á ferðalaginu? Þá er þessi stofnun á þínu bandi.

Leiðindi á ferðalaginu? Þá er þessi stofnun á þínu bandi.

Hvað nákvæmlega gerir umboðsmaður ferðamanna?

Sú stofnun gætir þess að þjónusta við ferðalanga á flugvöllum, lestarstöðvum og skipahöfnum sé í það minnsta viðunandi. Að fyrirtæki í ferðaþjónustu séu ekki að svindla á viðskiptavinum sínum og ekki síst leiðbeina og aðstoða þá sem hvergi fá aðstoð annars staðar.

Stofnunin, Passenger Focus, starfar náið með stjórnvöldum og hefur nægileg völd til að beita fyrirtæki í ferðaþjónustu sektum ef þjónusta þykir fyrir neðan hellur.

Hingað til hefur stofnunin, sökum manneklu, fyrst og fremst einbeitt sér að þjónustu og löggjöf hvað varðar lestar- og rútuferðir en skammt er síðan heimildir Passenger Focus náðu líka til flugfarþega. Ekki veitir af því kannanir hafa sýnt að sífellt lengri bið á flugvöllum, sífellt lengri raðir í öryggisleit og sífellt harðari reglur um farangur hafa neikvæð áhrif á fleiri og fleiri.