Tuttugu þúsund króna gjafabréf upp í aðra ferð voru allar bæturnar sem Úrval Útsýn gaf eftir til handa tveimur ferðalöngum sem með ferðaskrifstofunni ferðuðust vorið 2008 en ekki stóðst steinn yfir steini hvað loforð ÚÚ varðaði.
Þannig fengu hjónin gistingu á hóteli á Kanaríeyjum sem var verið að endurnýja þrátt fyrir að bæklingur ÚÚ staðhæfði að öllum framkvæmdum væri löngu lokið. Ekki aðeins það heldur fengu þau eitt af örfáum herbergjum sem enn átti eftir að endurnýja og sökum dragsúgs veiktust bæði strax á öðrum degi.
Lágu hjónin því veik fjóra daga í vikuferð en þrátt fyrir að fallast á mistök sín voru 20 þúsund krónur eina afsökunin sem Úrval Útsýn féllst á að gefa.






