Eins og Fararheill hefur sagt frá er fjarri því gefins orðið að taka flugið til Barcelóna í sumar. Jafnvel á allra ódýrustu tilboðsfargjöldum er þangað vart komist fram og aftur undir 60 þúsund krónum en almennt meðalverð töluvert hærra en það. Icelandair býður best þessa stundina flug báðar leiðir á kringum hundrað þúsund kallinn.
Sem er víðsfjarri eðlilegu verði en hvað geta bændur á einokunareyjunni Ísland gert til að styrkja ekki slíkan viðbjóð? Jú, það eru tvær leiðir sem hægt er að fara en sem fyrr verður að hafa hendur hraðar.
A) Spænska lággjaldaflugfélagið Vueling flýgur milli Keflavíkur og Barcelóna á nokkrum dagsetningum í júní, júlí og ágúst. Þegar þetta er skrifað er hægt að komast á milli fyrir 65 til 70 þúsund krónur plús farangursgjald. Vissulega ekki mikið ódýrara en fargjöld Wow Air sömu leið en sannarlega vel undir lægsta verði Icelandair.
B) Þessa stundina eru í boði hjá Wow Air fargjöld á tilboði til Amsterdam. Önnur leiðin kostar 13.800 krónur og fram og aftur um 30 þúsund án farangurs. Frá Schiphol í Amsterdam flýgur hið spænska Vueling líka daglega til Barcelóna og samkvæmt leitarvef Dohop er algengt verð þar á milli í sumar 18 þúsund krónur báðar leiðir.
Ergo: Það er komist til Barcelóna fyrir 50 þúsund krónur farangurslaust ef fólk sættir sig við að eyða oggustund á Schiphol í millitíðinni.
Flugfélagið Vueling, fyrir þá sem ekki vita, er eitt af allra bestu lággjaldaflugfélögum heims og Fararheill hefur afar fína reynslu af ferðalögum með því félagi.
Allt sem þú vildir vita um Barcelóna en þorðir ekki að spyrja um hér. Allt sem þú vildir vita um Amsterdam en þorðir ekki að spyrja um hér.








