Kaffibolli á 35 kall! Ágætt rauðvín með matnum á 180 kall! Aðgöngumiði á virt safn á 80 krónur! Og svín fljúga.
Nema hvað þessi verð eru raunverulega miðuð við hina föllnu íslensku krónu og þú getur notið þess ef þú opnar hugann augnablik og vilt raunverulega geta notið tíma erlendis án þess að fá taugaáfall í hvert sinn sem greiða þarf fyrir nokkurn skapaðan hlut.
En til þess þarf reyndar að fara til Armeníu. Sem er óralangt frá flestum stöðum sem okkur dreymir um en virkilega þess virði að heimsækja og margt athyglisvert þar að sjá og upplifa sem ekki fæst annars staðar. Armenía er austur af Tyrklandi og norður af Íran og það vita þeir sem ferðast hafa á þessa tvo staði að báðir eru lofsverðir.
Höfuðborg Armeníu er Yerevan sem sannarlega er gamaldags sovésk borg en það er dálítið heillandi og hún er nógu nútímaleg til að fæstum leiðist þar í styttri heimsóknum. Sem kannski er helsta vandamálið; styttri heimsóknir, því til Yerevan er þrettán tíma flug.
Láti menn sig hafa það eru til þeir sem aldrei fá nóg af því að virða fyrir sér skipulag, mannlíf og byggingalist í fornri sóvéskri borg en þar er einnig:
- Sergei Parajanov safnið sem þykir afar sérstakt og fær afskaplega góða dóma.
- Erebuni er stórmerkt mannvirki frá áttundu öld fyrir Krist.
- Helfararsafn er hér mikið og gott.
- Þó Yerevan virðist fjallapleis mikið fæst hér kaffi latte og capuccino á öllum betri kaffihúsum og þrátt fyrir fátækt svífur hér nettur Evrópukeimur yfir vötnum.







