Tíðindi

Hipsumhaps verðlagning Heimsferða

  18/02/2013desember 13th, 2013No Comments

Samanburður á bestu sumarleyfisferðum ferðaskrifstofunnar Heimsferða næsta sumarið leiðir í ljós að verð hefur lækkað allra mest á ferðum þeirra til Ljublana í Slóveníu annars vegar og Costa del Sol og Benídorm á Spáni hins vegar. Mesta hækkun milli ára er aftur á móti til Búdapest í Ungverjalandi og Prag í Tékklandi.

Heimsferðir bjóða nú sem fyrr ferðir til hinnar fallega borgar Ljúblana sem er sannarlega utan alfaraleiða íslenskra ferðaskrifstofa

Heimsferðir bjóða nú sem fyrr ferðir til hinnar fallega borgar Ljúblana sem er sannarlega utan alfaraleiða íslenskra ferðaskrifstofa

Sökum þess að fjölbreytni hefur aldrei þótt eftirsóknarvert af hálfu flestra stærri ferðaskrifstofa landsins er sáraeinfalt að bera saman verð þeirra milli ára. Bæði áfangastaðir og oft á tíðum gisting er sú sama ár frá ári enda fjöldi fólks sem kýs að ganga að hlutunum vísum.

Yfirlega yfir sumarferðir Heimsferða nú og á síðasta ári leiðir í ljós að ferðaskrifstofan býður tvo nýja áfangastaði og hendir öðrum tveimur í staðinn en þess utan er um nákvæmlega sömu ferðir að ræða og áður. Eru þá sérferðir ekki taldar með.

Inn koma sem nýir, þó deila megi um það, Roquetas de Mar á Spáni og Krít í Grikklandi en út fara Bodrum í Tyrklandi og Mallorca í staðinn. Roquetas de Mar er reyndar kynnt hér sem Almería sem er svipað vitlaust og kalla Benídorm Alicante.

Heilt yfir virðist verðlagning vera nokkuð hippsumhaps eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Fimm áfangastaðir hækka í verði milli ára en aðrir fimm lækka.

Ódýrustu ferðir Heimsferða 2012 og 2013. Ekkert eitt virðist ráða verðlagningu ferðaskrifstofunnar

Ódýrustu ferðir Heimsferða 2012 og 2013. Ekkert eitt virðist ráða verðlagningu ferðaskrifstofunnar