Fátt er sennilega mikið súrara en fá væna jólagjöf frá ástvinum til þess eins að komast að því síðar að gjöfin sú fellur hraðar í verði en Kaupþing banki í október 2008.

Alla jafna svarar starfsfólk Wow Air fljótt og örugglega fyrirspurnum á fésbókarvef sínum en þó ekki þeim óþægilegu.Skjáskot af fésbókarvef Wow
Slíkt má heimfæra á jólagjafakort þau sem bæði Wow Air og Icelandair hafa boðið til sölu fyrir jól en Fararheill hefur ítrekað bent fólki að lesa kyrfilega smáa letrið við kaup á slíkum gjöfum því takmarkanir á þeim eru verulegar og nýti fólk kortin ekki því sem næst samstundis eru vonbrigði næst á dagskrá.
Vonbrigðin augljós eins og sjá má á einni kvörtun á fésbókarvef Wow Air en þar undrast gjafakortseigandi að bæta þurfi tugþúsundum króna við jólagjöfina til að komast lönd eða strönd.
Wow Air er þó ekki eitt um að bjóða gjafakort með milljón skilmálum og takmörkunum. Það gerir Icelandair líka en hjá báðum aðilum gilda kortin nánast eftir hentugleik fyrirtækjanna en ekki handhafa.
Leiðinlegt og ekki alveg í takt við boðskap jólanna að mati ritstjórnar Fararheill.is,






