Frá og með síðustu áramótum tóku gildi nýjar reglur í sólskinsríkinu Flórída í Bandaríkjunum sem kveða á um að allir erlendir ferðamenn verði að hafa alþjóðleg ökuskírteini í viðbót við sín hefðbundnu skírteini til að mega aka um á vegum fylkisins. Góðu heilli hefur þessi ákvörðun verið dregin til baka að minnsta kosti tímabundið.
Hingað til hefur hver sem er getað ekið hvert sem er innan fylkismarka án þess að framvísa öðru en gildu ökuskírteini frá heimalandinu. En lögreglan í fylkinu fékk breytingar í gegn því of langan tíma tók fyrir viðkomandi að ganga úr skugga um gildi ökuskírteina á hinum ýmsu tungumálum.
En nú hafa stjórnvöld í Flórída sett þessa kröfu á ís að sinni vegna mikilla mótmæla og þá sérstaklega ferðamanna frá Kanada og Bretlandi hvers ökuskírteini eru vitaskuld á ensku og því auðskilin.
Það er hins vegar aðeins tímabundið meðan verið er að breyta lögum og undanskilja ferðamenn frá þessum löndum eftirleiðis. Íslendingar munu þurfa alþjóðleg ökuskírteini í framtíðinni til að þvælast um Orlando og nágrenni og vissara að ganga í það fyrr en síðar því viðurlög við akstri án slíks er bæði sekt og fangelsisdómur.
Hér á landi er hægt að verða sér úti um slík skírteini á skrifstofu Félags íslenskra bifreiðareigenda.







