Eflaust eru margir þarna úti þegar búnir að bóka sumarleyfisferðir sínar. Þeir sem enn hafa ekki klárað þau mál gætu haft áhuga á ágætri átta daga ferð um eitt allra fallegasta svæði Ítalíu.

Stórkostleg náttúrufegurð Amalfi er heimsfræg. Mynd Benson Kua

Stórkostleg náttúrufegurð Amalfi er heimsfræg. Mynd Benson Kua

Ferðir héðan til Amalfi strandarinnar á Ítalíu seljast gjarnan upp á skömmum tíma. Það skiljanlegt því svæðið hentar nánast öllum sama hverjar óskirnar eru. Fátt er rómantískara en afdrep í klettóttum hlíðum Amalfi með útsýni yfir hafið. Göngufólk gæti líka verið hér að í nokkur ár án þess að leiðast augnablik. Forvitni gæti rekið suma til að klífa Vesúvíus og kynna sér hina gröfnu borg Pompeii. Verslunarglaðir eru brosandi hringinn í Napolí svo ekki sé minnst á nostalgíuna sem gripið getur þá sem stíga fæti á hina fallegu eyju Capri.

Dönsk ferðaskrifstofa, Risskov, er að bjóða átta daga túra um ofangreint svæði með vönum leiðsögumönnum niður í 125 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman þessa dagana. Fantagott verð en auðvitað þurfum við að koma okkur til Köben eða Billund til að grípa gæs.

Það aftur kostar manninn vart minna en 30 þúsund eða 60 þúsund samtals að komast þangað þannig að heildarprís verður um eða yfir 300 þúsund krónur.

Sem er engu að síður ekkert hræðilegt verð á góðri ferð. Svo má líka lengja aðeins pakkann og gefa sér stund í Danmörku.

Allt um þetta hér.