Ætli landinn að bóka flug til Köben þetta sumarið er enn og aftur full ástæða til að gera verðsamanburð milli Icelandair og Wow Air. Þó hið síðarnefnda kalli sig lággjaldaflugfélag finnst lægra verð á vef Icelandair í júlímánuði.

2-1 fyrir Wow Air til Köben þetta sumarið eins og staðan er í dag.

2-1 fyrir Wow Air til Köben þetta sumarið eins og staðan er í dag.

Fararheill kíkti á flugfargjöld héðan til Köben og heim aftur í júní, júlí og ágúst og leitaði að lægsta verði fram og aftur innan hvers mánaðar fyrir sig. Við bættum við einni tösku fram og aftur með Wow Air til að fá eðlilegan samanburð og í júní og ágúst er lægst verð sannarlega gegnum Wow Air. En ekki í júlí.

Þetta má sjá á meðfylgjandi töflu en leitað var samtímis hjá báðum aðilum klukkan 13.10 þann 23. apríl 2015. Hafa skal í huga að verðbreytingar eru örar hjá báðum aðilum en minnst vika var á milli brottfarar og heimkomu.