Líklega eru ekki margir þarna úti að frátöldum Kristjáni Loftssyni og ríkisstarfsmönnum sem skoða sérstaklega Saga Class fargjöld Icelandair. Þau yfirleitt það mikið dýrari en önnur fargjöld að meðalgúbbinn hristir höfuðið og bókar á sardínufarrými.

Ákaflega lítill munur á sardínupakkanum annars vegar og svo Saga Class. Skjáskot
Hvað fæst í raun fyrir allan peninginn á Saga Class? Sætin eru breiðari og þægilegri, breiðara bros hjá flugþjónum og matur og drykkur innifalið í verði og smotterí eins og frítt net og forgangur inn og út úr vélinni.
Allt ofangreint skiptir gjarnan máli sé um langar flugferðir að ræða enda þekkja það margir að seta í þröngu almennings farrými lengur en fjórar til fimm stundir fer að taka nokkuð á líkamlega og andlega. Minna mál þegar flugið er aðeins þrír til fjórir tímar fyrir flesta heilbrigða einstaklinga.
En það er annað sem viðvera á Saga Class gefur og getur komið að góðu fyrir þá sem hyggjast maxa kortin í verslunarferð. Farangursheimildir eru mun víðtækari. Sé flogið til Evrópu getur Saga Class farþegi tekið með sér 64 kíló af drasli eða tæplega þrefalt meira en farþegi á sardínufarrými.
Ástæða þess að við fjöllum um þetta nú sú að við erum að detta oftar og oftar um að sæti á svokölluðu economy comfort farrými eru litlu ódýrari en sæti á Saga Class. Munurinn stundum aðeins þrjú til fjögur þúsund krónur eins og sést á skjáskotinu hér að ofan. Það er of lítill munur til að slá ekki til og þamba Moet & Chandon alla leiðina. Nú og auðvitað að fá tækifæri til að spjalla við herra Loftsson um hvalveiðar, Ólaf Ragnar um skítlegt eðli, Ólaf Ólafsson um glæpi og refsingu, stórvesíra úr bankakerfinu um afleiður eða Finn Ingólfsson um Orkuveitumælana. Það gæti verið forvitnilegasta flug sem þú hefur farið.







