Enn eitt dæmið um mikilvægi þess að bera saman fleiri en einn hótelbókunarvef þegar betri fætinum skal brugðið fyrir sig erlendis kemur frá Noregi. Þar hefur dagblaðið Verdens Gang komist að því að einn vinsælasti hótelbókunarvefurinn, hotels.com, greinir ekki satt og rétt frá í öll skipti.
Tekur blaðið dæmi um hótel í Bergen sem samkvæmt vef hotels.com er fullbókað öllum stundum sama hvenær leitað er. Það eðlilega hrekur frá því fólk hefur takmarkaðan tíma og þolinmæði. Gallinn bara sá að umrætt hótel er alls ekki fullbókað heldur er ekki með samning við hotels.com.
Í stað þess að sleppa þá viðkomandi hóteli þegar leitað er á vef hotels.com grípa þeir til þess ráðs að lista hótelið ásamt öðrum en tilkynna það fullbókað. Þannig lítur hotels.com vel út með gott úrval meðan hótelið sjálft tapar viðskiptum.
Er þetta ekki eina dæmið um óheiðarleika hotels.com sem forsvarsmenn umrædds hótels í Bergen kannast við.






