Íbúðaskipti virðast heilla marga ef marka má nýja vefkönnun Fararheill.is enda kjörin leið til að spara stóra peninga á ferðalögum og ekki veitir af á mörgum íslenskum heimilum.
Svara 147 einstaklingar, 59 prósent, af 248 alls því til að íbúðaskipti sé góð hugmynd og þá langi til að prófa slíkt fyrr en síðar meðan 37 einstaklingar, 15 prósent, hafa þegar prófað að skipta á fasteign sinni fyrir aðra erlendis. Einungis 26 prósent, 65 aðilar, segja slíkt aldrei munu koma til greina.
Veit ritstjórn um allmarga einstaklinga sem þetta hafa reynt og þó stundum gangi það ekki alfarið vandræðalaust fyrir sig hefur enginn þeirra orðið fyrir tjóni og allir hafa sparað verulegar upphæðir á slíku fyrirkomulagi.
Finna má hér lista yfir þekkta og trausta aðila erlendis sem hafa milligöngu um íbúðaskipti eða íbúðaleigu og skal hafa í huga að mikil eftirspurn er eftir slíku af hálfu erlendra ferðamanna.






