Tíðindi

Morgundagur gefur gull í mund

  24/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Morgundagurinn gefur gull í mund séu einhverjir Íslendingar sem langar að flýja aðeins erlendis á næstunni. Ferðasalinn Iceland Express auglýsir nefninlega sérstök tilboðsfargjöld frá hádegi á morgun 25. ágúst og á þá að selja ferðir til Evrópu og Bandaríkjanna með verulegum afslætti.

Er því ráð fyrir ferðaglaða að hinkra með farmiðakaup allavega til hádegis á morgun en samkvæmt auglýsingu Iceland Express verða í boði ýmsir áfangastaðir í Evrópu á 11.900 krónur aðra leið og 22.900 aðra leiðina til New York.

Eru auglýst fargjöld þannig um tíu þúsund krónur ódýrari en venjulega sé miðað við algeng verð aðra leið til Evrópu og Bandaríkjanna.